Loka

Innskráning

Vinstri græn í Kópavogi

 

Innskráning

Frambodslisti 2010

Nýr meirihluti og nýr bæjarstjóri í Kópavogi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 04. júní 2010 20:40
 
Kópavogsbúar felldu sitjandi meirihluta B og D lista í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Framsókn og Vinstri græn héldu hvor sínum manni, Sjálfstæðismenn misstu einn og það gerði Samfylkingin einnig. Tvö ný framboð, Næstbesti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa fengu sinn manninn hvor.
 
Undanfarna viku hafa viðræður staðið yfir hjá þeim flokkum sem felldu meirihlutann og er það nú ljóst að Vinstri græn, Samfylking, Næstbesti flokkurinn og Listi Kópavogsbúa mynda nýjan meirihluta í Kópavogi.
 
Flokkarnir komu sér saman um að ráða bæjarastjóra utan þeirra raða. Náðist samstaða um að ráða Guðrúnu Pálsdóttur. Hún hefur starfað sem sviðsstjóri menningarsviðs bæjarins og verið fjármálastjóri til 20 ára.

Drög að málefnasamningi liggja fyrir en unnið verður að frekari útlistun málefnasamnings og verkaskiptingar í næstu viku.

Formaður bæjarráðs verður Guðríður Arnardóttir oddviti Samfylkingarinnar. Forsetar bæjarstjórnar verða Ólafur Þór Gunnarsson oddviti Vinstri Grænna og Hjálmar Hjálmarsson oddviti Næstbesta flokksins.

 
Hagsmunatengsl sex efstu frambjóðenda VG Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 26. maí 2010 00:22

Af gefnu tilefni eru hér birtar upplýsingar um helstu eignir og hagsmunatengsl sex efstu á lista Vinstri grænna í Kópavogi. Hér eru upptaldar eignir umfram eigið íbúðarhúsnæði. Enginn af þessum frambjóðendum þáði styrki í forvali Vg nú á vordögum.

 

1. Ólafur Þór Gunnarsson:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Fjórðungur í sumarhúsi á Ísafirði (Grænagarði).

Hlutabréfaeignir : Hlutabréf í Ísnum, ísverksmiðju á Ísafirði, 6.67 % hlutur að nafnvirði 1.600.000 kr,  20.000 kr. hlutur í Friðarhúsi, 420.000 kr. hlutur í Kragakaffi, húsnæði VG í Kópavogi.  

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka :  Sæti í stjórn Fjölskyldu og styrktarsjóðs lækna, ólaunað.  Varamaður í stjórn VG Kópavogi, ólaunað. Formaður Hússtjórnar Kragakaffis, ólaunað.  Sit í Framkvæmdanefnd um málefni aldraðra (greitt 7000 fyrir fundinn), sit í nefnd sem endurskoðar sveitarstjórnarlög (greitt 7000 fyrir fundinn). Sit í jafnréttisnefnd LSH, ólaunað.

Vinnu veitandi : Öldrunarlæknir á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Bæjarfulltrúi í Kópavogi. Læknir ungmennalandsliða kvenna í knattspyrnu, ólaunað, en dagpeningar greiddir í landsliðsferðum. Trúnaðarlæknir AFS á Íslandi, ólaunað. Kenni stundakennslu við Læknadeild HÍ og við KHÍ íþróttaskor.

2. Guðný Dóra Gestsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : 10.000 kr í Kragakaffi, félagsheimili VG í Kópavogi, 40.000 kr í Friðarhúsi

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Formaður FÍSOS - Félags íslenskra safana og safnmanna
Varaformaður í Safnaráði, meðstjórnandi í All senses ( samtök ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi )
Skólanefnd Menntastkólans í Kópavogi. Stjórn húsfélags Kragakaffis, félagsheimilis VG i Kópavogi.
Allar ofangreindar nefndir eru ólaunaðar.

Vinnu veitandi : Framkvæmdastjóri á Gljúfrasteini - húsi skáldsins

3. Karólína Einarsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : Engin.

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Er formaður VG í Kópavogi, Ritari í Heimssýn.


Vinnu veitandi : Kópavogsbær.

4. Arnþór Sigurðsson

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Áfltröð 1. efri hæð.

Hlutabréfaeignir : 500 þús kr. hlutur í TAS ehf.

Seta í stjórnum fyrirtækja : TAS ehf,

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Seta í stjórn frjálsíþróttadeildar Breiðabliks og í aðalstjórn Breiðabliks. Varaformaður VG í Kópavogi.


Vinnu veitandi : TM Software og Kaupás.

5. Guðbjörg Sveinsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : Engin.

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engin

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Í stjórn Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands


Vinnu veitandi : Landspítali, geðsvið.

6. Hreggviður Norðdal :

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Fjóðungshlutur í sumarbústað að verðmæti krónur 1.474.750,-

Hlutabréfaeignir : Í Kragakaffi að verðmæti krónur 30.000,-

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engin

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Seta í stjórnum félaga og samtaka:  Áheyrnarfulltrúi Vg í
skipulagsnefnd Kópavogsbæjar (krónur 22.321,- fyrir hvern fund), í
varastjórn Blaksambands Íslands (ólaunað), og formaður sóknarnefndar
Digranessóknar (ólaunað).


Vinnu veitandi : Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fræðimaður við
þá stofnun og Aðjúnkt (stundakennari) við Jarðvísindadeild Verkfræði- og
Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Sit í deildarráði
Jarðvísindadeildar (varaforseti) og stjórn Jarðvísindastofnunar.

 

VG í Kópavogi.

 

 

Póstlisti

Hér geturðu skráð þig á póstlista Vinstri grænna í Kópavogi
Nafn
Póstfang