Loka

Innskráning

Vinstri græn í Kópavogi

 

Innskráning
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Lög  Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi

 

I. Heiti og markmið

1.  grein

Félagið heitir Vinstrihreyfingin grænt framboð í Kópavogi (VG - Kópavogi). Það er svæðisfélag í VG. Heimili þess og varnarþing er í Kópavogi.

2.  grein

Félagið sinnir bæjarmálastarfi i Kópavogi og stendur fyrir framboði flokksins til sveitarstjórnar. Hlutverk félagsins er jafnframt að vinna að því, að stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í þjóðmálum nái fram að ganga eins og hún er skilgreind í lögum flokksins og eins og hún kemur fram í ályktunum landsfunda og annarra stofnana flokksins á hverjum tíma.

 

II. Félagsaðild

3.  grein

Félagar geta allir þeir orðið, sem styðja markmið félagsins og ekki eru félagsbundnir í öðrum stjórnmálaflokkum.  

4.  grein

Umsóknum um félagsaðild skal beint til ritara félagsins eða annarra stjórnarmanna, með beinum hætti, í gegnum tölvupóst, eða í gegnum framkvæmdastjóra VG á landsvísu. Skráning skal vera heimil í gegnum vefsíðu flokksins. Ritari heldur félagaskrá. Stjórn félagsins tilkynnir  nöfn nýrra flokksmanna til skrifstofu flokksins sem heldur félagaskrá á landsvísu.

 

III. Skipulag

5.  grein

Stjórn félagsins skal skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara. Stjórn Ungra Vinstri grænna skal heimilt að tilnefna einn aðalmann í stjórn. Stjórn skal kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Formaður skal kjörinn sérstaklega, þá fjórir aðalmenn og loks tveir varamenn. Stjórnin skiptir sjálf verkum milli aðalstjórnarmanna. Varamenn skulu boðaðir á alla stjórnarfundi.

                Kosið skal  persónubundinni, leynilegri kosningu. Kjörgengi hafa allir félagsmenn sem hafa lögheimili í Kópavogi. Komi aðeins fram ein tillaga um formann, aðra aðalstjórnarmenn, varamenn í stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins, teljast þeir sjálfkjörnir. Framboð til stjórnar teljast gild ef fyrir liggur skriflegt samþykki þess sem er í kjöri. Uppástungur um stjórnarmenn sem fram koma á aðalfundi teljast gildar ef fyrir liggur skriflegt samþykki þess sem stungið er upp á eða viðkomandi gefur í heyranda hljóði samþykki sitt á fundinum.

6.  grein

Aðalfundur félagsins skal haldinn eigi síðar en 31. janúar ár hvert og skal hann boðaður með minnst einnar viku fyrirvara. Fundarboð skal vera í blaði félagsins, næst á undan aðalfundi. Aðalfund má einnig boða með útvarpsauglýsingu, auglýsingum í blöð, á vefsíðu flokksins, með tölvupósti eða bréflega. Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað. Fastir liðir aðalfundar skulu vera sem hér segir:

 

  1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
  2. Lagðir fram reikningar félagsins fyrir undangengið starfsár og þeir bornir upp til samþykktar.
  3. Lagabreytingar hafi tillögur um slíkt borist stjórninni og þær verið kynntar í fundarboði.
  4. Kosning formanns.
  5. Kosning fjögurra aðalmanna í stjórn og tveggja manna til vara.
  6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
  7. Afgreidd tillaga nýrrar stjórnar um félagsgjald fyrir næsta starfsár. Við ákvörðun þess hverju sinni skal tekið mið af ákvörðun flokksstjórnar VG um lágmarksárgjald.
  8. Kosning fulltrúa félagsins í kjördæmisráð Suðvesturkjördæmis. Kjósa skal einn fulltrúa fyrir hverja 5 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu.
  9. Kosning fulltrúa á Landsfund VG. Kjósa skal einn fulltrúa fyrir hverja 5 félagsmenn upp að tölunni 30, en einn fyrir hverja 9 félagsmenn þar umfram eða brot úr þeirri tölu. Þau ár sem landsfundur er haldinn.

10.  Önnur mál.

Heimilt er með samþykki meirihluta fundarmanna á aðalfundi að boða til framhaldsaðalfundar. Hann skal boðaður með sama hætti og aðalfundur, og er löglegur með sömu skilyrðum.

 

7.  grein

Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember, og skal gjaldkeri skila reikningum félagsins í samræmi við það.

8.  grein

Lagabreytingar verða einungis gerðar á aðalfundi eða framhaldsaðalfundi. Þær skulu kynntar í fundarboði. Til að lagabreytingar nái fram að ganga þurfa þær samþykki 2/3 hluta þeirra sem greiða atkvæði.

 

9.  grein

Félagsfundir skulu haldnir  a.m.k. tvisvar á hverju starfsári, og svo oft sem þurfa þykir. 10% félagsmanna getur krafist þess að haldinn sé félagsfundur um tiltekið efni, og skal stjórn verða við því svo fljótt sem auðið er, og ekki seinna en tveimur vikum eftir að beiðni um slíkt berst.  Félagsfundi skal boða með minnst 3ja virkra daga fyrirvara. Fundarboð getur verið með útvarpsauglýsingu, auglýsingum í blöð, á vefsíðu félagsins eða með tölvupósti. Félagsfund þar sem teknar eru ákvarðanir um framboð til sveitarstjórnarkosninga skal boða með sama hætti og aðalfund, og með viku fyrirvara.

 

10.  grein

Félagsfundur tekur allar ákvarðanir um framboð og tilhögun þess til bæjarstjórnarkosninga í Kópavogi.   Sama gildir um aðferð við að velja fólk til setu á framboðslista. Heimilt er að velja á framboðslista með forvali eða prófkjöri. Félagsfundur getur ákveðið að framboð til sveitarstjórnar sé í samvinnu við aðra flokka eða stjórnmálahreyfingar.

a)       Þegar  framboðslisti, eða tiltekin sæti hans, eru ákvörðuð með forvali skal félagsfundur velja þriggja manna forvalsnefnd, sem gerir tillögu að reglum forvals/prófkjörs. Félagsfundur kýs kjörnefnd sem sér um framkvæmd forvals/prófkjörs. Að loknu forvali skal nefndin kynna úrslit. Nefndin gerir tillögu um röðun í sæti á framboðslista í samræmi við niðurstöður forvals/prófkjörs, og um þau sæti sem ekki var kosið um. Tillaga nefndarinnar skal kynnt á félagsfundi og borin upp.

b)       Þegar valið er á framboðslista eftir uppstillingu kýs félagsfundur þriggja manna uppstillingarnefnd. Tillaga uppstillingarnefndar skal  kynnt og borin upp á félagsfundi.

 

IV. Annað

11.  grein

 

Bæjarmálaráð flokksins er skipað öllum fulltrúum flokksins í ráðum og nefndum á vegum Kópavogsbæjar, bæði aðal, -og varamönnum auk áheyrnarfulltrúa.  Bæjarmálaráð kýs sér formann, sem boðar fundi þess. Ráðið skal einnig leitast við að halda opna fundi þar sem öllum félagsmönnum og öðrum bæjarbúum gefst tækifæri til skoðanaskipta og til að koma málum á framfæri.

12.  grein

Við skipan í  nefndir, ráð og stjórnir á vegum Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Kópavogi skal leitast við að hlutföll kynja séu sem jöfnust, í samræmi við lög flokksins á landsvísu.

13.  grein

Stjórn félagsins ber gefur út blað flokksins Kóp.  Tilgangur slíkrar útgáfu er að kynna stefnu og starf félagsins og stuðla að virkri umræðu um þjóðmál og málefni bæjarfélagsins. Stjórnin tilnefnir þrjá menn til setu í ritnefnd, sem er ábyrg fyrir útgáfunni.

14.  grein

Lög þessi  taka þegar gildi og eru þá fallnar úr gildi allar eldri útgáfur laganna.

 

Samþykkt á aðalfundi 24. janúar 2008