Loka

Innskráning

Vinstri græn í Kópavogi

 

Innskráning

Frambodslisti 2010

VG er lykillinn að nýjum vinnubrögðum í Kópavogi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 12. maí 2010 17:48

altVinstri græn í Kópavogi kynntu málefnaáherslur sínar vegna sveitastjórnakosninganna í húsi siglingaklúbbsins Ýmis í dag.

Í vor gefst fólki kostur á að velja á milli stefnu þar sem áherslan er á fólk, félagsleg gildi og jöfnuð eða þeirrar verktakavæðing og gróðahyggju sem ríkt hefur í Kópavogi undanfarin 20 ár. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er niðurlútum kominn.

Við í Vinstrihreyfingunni grænu framboði erum tilbúin til að taka við því búi sem
hrunflokkarnir skilja eftir sig. Skuldastaða bæjarins er skelfileg. Vinstri græn vilja standa vörð um grunnþjónustuna; leik- og grunnskóla og þétta velferðarnetið. Áherslan verður að vera á fólk og velferð þess. Atvinna og menntun eru velferðarmál.

Nú er ekki tími innantómra kosningaloforða og gylliboða. Bænum þarf að stjórna af ábyrgð og festu. Vinstri græn vilja rannsóknarskýrslu í Kópavogi með svipuðum hætti og þegar hefur verið unnin fyrir Alþingi.

Lýðræði - íbúatengiliður

Þátttaka fólks í lýðræðissamfélagi er grundvallar tónn í stefnu Vinstri grænna. Við viljum hlusta! Vinstri græn vilja koma á fót og efla hverfasamtök í öllum bæjarhlutum Kópavogs og styðja við starfssemi þeirra. Eitt skref í þá átt er að ráða íbúatengilið. Boðleiðir milli bæjaryfirvalda og íbúa ekki síður en stofnanna og starfsmanna bæjarins þurfa að vera miklu greiðari en nú. Við viljum halda opna bæjarstjórnarfundi í hverfum bæjarins.

Umhverfi og skipulag

Við viljum taka upp ný vinnubrögð í skipulagsmálum. Skipulag sem unnið er í sátt við íbúa og umhverfi. Vinstrihreyfingin grænt framboð vill að komið verði á sameiginlegri skipulagsnefnd á höfuðborgarsvæðinu. Gengdarlaus samkeppni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í lóðarsölu og landakaupum á undanförnum árum hefur keyrt fjárhag þeirra flestra í þrot.

Íbúar á Kársnesi, við Nónhæð, við Kópavogstún, í Lindahverfi og í Grundunum hafa upplifað yfirgang bæjaryfirvalda í skipulagsmálum. Slíkt má ekki endurtaka sig!

Við viljum bæta aðgengi að grænum svæðum, göngu- og hjólreiðastígum og útivistarsvæðum. Vatn er okkar dýrmætasta auðlind. VG vill standa vörð um vatnsverndarsvæðin í landi Kópavogs.

Öflugar samgöngur og umhverfisvænn ferðamáti er sjálfsögð krafa í nútíma samfélagi.

Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur áherslu á að blása lífi í hálfbyggð hverfi í bæjarins. Yfirtaka bæjarins á íþróttamannvirkjum í Kórnum er lýsandi dæmi um hugmyndafræðilegt skipbrot núverandi meirihluta. Íbúar Kópavogs sitja uppi með skuldirnar en líka mannvirkin. Við viljum nota þau til að efla mannlífið í hverfinu, m.a. með uppbyggingu nýsköpunarmiðstöðvar, ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur, framhaldsskóla með áherslu á nýsköpun, listir og íþróttir, koma fyrir Bókasafni og Héraðsskjalasafni Kópavogs.

Velferð, menntun, atvinna

Við viljum að Kópavogsbær hafi frumkvæði að því að kaupa íbúðir á ýmsum byggingastigum í samvinnu við íbúðarlánasjóð. Með því mætti skapa atvinnu í bænum en jafnframt auka framboð á leiguhúsnæði.Íbúðirnar yrðu reknar á félagslegum grunni. Þannig verður Kópavogsbúum boðinn sá kostur að leigja eða eignast húsnæði á lengri tíma.

Kópavogsbær er stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélaginu. Bærinn þarf að standa vörð um störfin og beita sér af mætti við ráðningu ungmenna til sumarstarfa.

Móta þarf stefnu í menningar og ferðamálum fyrir Kópavogsbæ.

Öll mál er varða íbúana eru velferðarmál. Á þrengingartímum þarf að forgangsraða í þágu velferðar og jöfnuðar. Menntastofnanir bæjarins eru lykilþátttakendur í öryggisneti barnanna okkar. Vinstri græn munu beita sér gegn niðurskurði á þjónustu við börn.  VG vilja stuðla að heildstæðum vinnudegi fyrir yngstu börnin í bænum með því að flétta saman skóladeginum og frístundastarfi. Við viljum koma á frístundakorti til að hvetja börn til þátttöku og jafna aðstöðu fjölskyldna.

Á næsta kjörtímabili verður yfirtaka á málefnum fatlaðra eitt veigamesta verkefni sveitarfélagsins. Á því verkefni þarf að taka af metnaði með viðeigandi tekjustofnum.

Kópavogur fyrir okkur öll!

 

 

Póstlisti

Hér geturðu skráð þig á póstlista Vinstri grænna í Kópavogi
Nafn
Póstfang