Loka

Innskráning

Vinstri græn í Kópavogi

 

Innskráning

Frambodslisti 2010

Hagsmunatengsl sex efstu frambjóðenda VG Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 26. maí 2010 00:22

Af gefnu tilefni eru hér birtar upplýsingar um helstu eignir og hagsmunatengsl sex efstu á lista Vinstri grænna í Kópavogi. Hér eru upptaldar eignir umfram eigið íbúðarhúsnæði. Enginn af þessum frambjóðendum þáði styrki í forvali Vg nú á vordögum.

 

1. Ólafur Þór Gunnarsson:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Fjórðungur í sumarhúsi á Ísafirði (Grænagarði).

Hlutabréfaeignir : Hlutabréf í Ísnum, ísverksmiðju á Ísafirði, 6.67 % hlutur að nafnvirði 1.600.000 kr,  20.000 kr. hlutur í Friðarhúsi, 420.000 kr. hlutur í Kragakaffi, húsnæði VG í Kópavogi.  

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka :  Sæti í stjórn Fjölskyldu og styrktarsjóðs lækna, ólaunað.  Varamaður í stjórn VG Kópavogi, ólaunað. Formaður Hússtjórnar Kragakaffis, ólaunað.  Sit í Framkvæmdanefnd um málefni aldraðra (greitt 7000 fyrir fundinn), sit í nefnd sem endurskoðar sveitarstjórnarlög (greitt 7000 fyrir fundinn). Sit í jafnréttisnefnd LSH, ólaunað.

Vinnu veitandi : Öldrunarlæknir á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Bæjarfulltrúi í Kópavogi. Læknir ungmennalandsliða kvenna í knattspyrnu, ólaunað, en dagpeningar greiddir í landsliðsferðum. Trúnaðarlæknir AFS á Íslandi, ólaunað. Kenni stundakennslu við Læknadeild HÍ og við KHÍ íþróttaskor.

2. Guðný Dóra Gestsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : 10.000 kr í Kragakaffi, félagsheimili VG í Kópavogi, 40.000 kr í Friðarhúsi

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Formaður FÍSOS - Félags íslenskra safana og safnmanna
Varaformaður í Safnaráði, meðstjórnandi í All senses ( samtök ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi )
Skólanefnd Menntastkólans í Kópavogi. Stjórn húsfélags Kragakaffis, félagsheimilis VG i Kópavogi.
Allar ofangreindar nefndir eru ólaunaðar.

Vinnu veitandi : Framkvæmdastjóri á Gljúfrasteini - húsi skáldsins

3. Karólína Einarsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : Engin.

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engar.

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Er formaður VG í Kópavogi, Ritari í Heimssýn.


Vinnu veitandi : Kópavogsbær.

4. Arnþór Sigurðsson

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Áfltröð 1. efri hæð.

Hlutabréfaeignir : 500 þús kr. hlutur í TAS ehf.

Seta í stjórnum fyrirtækja : TAS ehf,

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Seta í stjórn frjálsíþróttadeildar Breiðabliks og í aðalstjórn Breiðabliks. Varaformaður VG í Kópavogi.


Vinnu veitandi : TM Software og Kaupás.

5. Guðbjörg Sveinsdóttir:

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Engar.

Hlutabréfaeignir : Engin.

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engin

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Í stjórn Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands


Vinnu veitandi : Landspítali, geðsvið.

6. Hreggviður Norðdal :

Eignir umfram eigið íbúarhúsnæði : Fjóðungshlutur í sumarbústað að verðmæti krónur 1.474.750,-

Hlutabréfaeignir : Í Kragakaffi að verðmæti krónur 30.000,-

Seta í stjórnum fyrirtækja : Engin

Seta í stjórnum félaga eða samtaka : Seta í stjórnum félaga og samtaka:  Áheyrnarfulltrúi Vg í
skipulagsnefnd Kópavogsbæjar (krónur 22.321,- fyrir hvern fund), í
varastjórn Blaksambands Íslands (ólaunað), og formaður sóknarnefndar
Digranessóknar (ólaunað).


Vinnu veitandi : Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fræðimaður við
þá stofnun og Aðjúnkt (stundakennari) við Jarðvísindadeild Verkfræði- og
Náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. Sit í deildarráði
Jarðvísindadeildar (varaforseti) og stjórn Jarðvísindastofnunar.

 

VG í Kópavogi.

 

 
VG er lykillinn að nýjum vinnubrögðum í Kópavogi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 12. maí 2010 17:48

altVinstri græn í Kópavogi kynntu málefnaáherslur sínar vegna sveitastjórnakosninganna í húsi siglingaklúbbsins Ýmis í dag.

Í vor gefst fólki kostur á að velja á milli stefnu þar sem áherslan er á fólk, félagsleg gildi og jöfnuð eða þeirrar verktakavæðing og gróðahyggju sem ríkt hefur í Kópavogi undanfarin 20 ár. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er niðurlútum kominn.

Við í Vinstrihreyfingunni grænu framboði erum tilbúin til að taka við því búi sem
hrunflokkarnir skilja eftir sig. Skuldastaða bæjarins er skelfileg. Vinstri græn vilja standa vörð um grunnþjónustuna; leik- og grunnskóla og þétta velferðarnetið. Áherslan verður að vera á fólk og velferð þess. Atvinna og menntun eru velferðarmál.

Nú er ekki tími innantómra kosningaloforða og gylliboða. Bænum þarf að stjórna af ábyrgð og festu. Vinstri græn vilja rannsóknarskýrslu í Kópavogi með svipuðum hætti og þegar hefur verið unnin fyrir Alþingi.

Lýðræði - íbúatengiliður

Þátttaka fólks í lýðræðissamfélagi er grundvallar tónn í stefnu Vinstri grænna. Við viljum hlusta! Vinstri græn vilja koma á fót og efla hverfasamtök í öllum bæjarhlutum Kópavogs og styðja við starfssemi þeirra. Eitt skref í þá átt er að ráða íbúatengilið. Boðleiðir milli bæjaryfirvalda og íbúa ekki síður en stofnanna og starfsmanna bæjarins þurfa að vera miklu greiðari en nú. Við viljum halda opna bæjarstjórnarfundi í hverfum bæjarins.

Umhverfi og skipulag

Við viljum taka upp ný vinnubrögð í skipulagsmálum. Skipulag sem unnið er í sátt við íbúa og umhverfi. Vinstrihreyfingin grænt framboð vill að komið verði á sameiginlegri skipulagsnefnd á höfuðborgarsvæðinu. Gengdarlaus samkeppni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu í lóðarsölu og landakaupum á undanförnum árum hefur keyrt fjárhag þeirra flestra í þrot.

Íbúar á Kársnesi, við Nónhæð, við Kópavogstún, í Lindahverfi og í Grundunum hafa upplifað yfirgang bæjaryfirvalda í skipulagsmálum. Slíkt má ekki endurtaka sig!

Við viljum bæta aðgengi að grænum svæðum, göngu- og hjólreiðastígum og útivistarsvæðum. Vatn er okkar dýrmætasta auðlind. VG vill standa vörð um vatnsverndarsvæðin í landi Kópavogs.

Öflugar samgöngur og umhverfisvænn ferðamáti er sjálfsögð krafa í nútíma samfélagi.

Vinstrihreyfingin grænt framboð leggur áherslu á að blása lífi í hálfbyggð hverfi í bæjarins. Yfirtaka bæjarins á íþróttamannvirkjum í Kórnum er lýsandi dæmi um hugmyndafræðilegt skipbrot núverandi meirihluta. Íbúar Kópavogs sitja uppi með skuldirnar en líka mannvirkin. Við viljum nota þau til að efla mannlífið í hverfinu, m.a. með uppbyggingu nýsköpunarmiðstöðvar, ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur, framhaldsskóla með áherslu á nýsköpun, listir og íþróttir, koma fyrir Bókasafni og Héraðsskjalasafni Kópavogs.

Velferð, menntun, atvinna

Við viljum að Kópavogsbær hafi frumkvæði að því að kaupa íbúðir á ýmsum byggingastigum í samvinnu við íbúðarlánasjóð. Með því mætti skapa atvinnu í bænum en jafnframt auka framboð á leiguhúsnæði.Íbúðirnar yrðu reknar á félagslegum grunni. Þannig verður Kópavogsbúum boðinn sá kostur að leigja eða eignast húsnæði á lengri tíma.

Kópavogsbær er stærsti vinnuveitandinn í sveitarfélaginu. Bærinn þarf að standa vörð um störfin og beita sér af mætti við ráðningu ungmenna til sumarstarfa.

Móta þarf stefnu í menningar og ferðamálum fyrir Kópavogsbæ.

Öll mál er varða íbúana eru velferðarmál. Á þrengingartímum þarf að forgangsraða í þágu velferðar og jöfnuðar. Menntastofnanir bæjarins eru lykilþátttakendur í öryggisneti barnanna okkar. Vinstri græn munu beita sér gegn niðurskurði á þjónustu við börn.  VG vilja stuðla að heildstæðum vinnudegi fyrir yngstu börnin í bænum með því að flétta saman skóladeginum og frístundastarfi. Við viljum koma á frístundakorti til að hvetja börn til þátttöku og jafna aðstöðu fjölskyldna.

Á næsta kjörtímabili verður yfirtaka á málefnum fatlaðra eitt veigamesta verkefni sveitarfélagsins. Á því verkefni þarf að taka af metnaði með viðeigandi tekjustofnum.

Kópavogur fyrir okkur öll!

 

 
1. maí í kragakaffi kl 16.00 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 01. maí 2010 00:25

Vinstri grænir í Kópavogi halda 1. maí 2010 hátíðlegan með kaffi og skemmtun í kosningamiðstoðinni í Hamraborg eða Kragakaffi frá kl. 16:00.

Ræðumenn :

Kristín Ólafsdóttir jafnréttisfulltrúi Kópavogsbæjar

og Margrét Pétursdóttir alþingiskona

 

Skemmtiatriði:

Þorvaldur Þorvaldsson syngur tvö lög

Hilmar Örn Hilmarsson og Erpur sjóða syð eins og þeim einum er lagi.

 

Kaffi og kökur

 

Allir velkomnir

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Póstlisti

Hér geturðu skráð þig á póstlista Vinstri grænna í Kópavogi
Nafn
Póstfang