Loka

Innskráning

Vinstri græn í Kópavogi

 

Innskráning

Frambodslisti 2010

Því ekki rannsóknarnefnd til að bæta stjórnsýslu í Kópavogi Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Laugardagur, 24. apríl 2010 19:19

alt  1. gr. laga um rannsóknarnefnd vegna bankahrunsins byrjar á þessari málsgrein:

  “Tilgangur laga þessara er að sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis leiti sannleikans um   aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða. Þá skal hún leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. “

Nú hefur rannsóknarnefndin skilað skýrslu sem fær lof hjá öllum sem til þekkja.

Nú er unnið að því á landsmálavettvangi að vinna úr niðurstöðum nefndarinnar og ekki verður betur séð en margir vilji læra af mistökunum. Þar hafa Vinstri græn reyndar algera sérstöðu en það breytir ekki því að við eigum líka að læra af aðdragandanum til þess að geta tekið þátt í að koma í veg fyrir að hrun endurtaki sig.


En sveitarfélag?

En er kannski skynsamlegt að fleiri fari í saumana á sínum málum en ríkið? Hvað með sveitarfélögin? Er hugsanlegt að stjórnkerfi þeirra geti lært eitthvað af meðferð málsins á ríkisvettvangi? Hvað með að skoða sveitarfélögin út frá sömu forsendum og rakið er í skýrslu rannsóknarnefndarinnar? Hvað með Kópavog? Ef við færum forsendur 1. greinar rannsóknarlaganna upp á Kópavog sem dæmi um sveitarfélag gæti verkefni rannsóknarnefndar í Kópavogi litið svona út:


1. Að varpa sem skýrustu ljósi á aðdraganda og orsakir þess að Kópavogur varð svo illa úti í hinu efnahagslega hruni.

2. Að afla upplýsinga um starfsemi bæjarstjórnar og bæjarstjóra sérstaklega.

3. Að koma með ábendingar og tillögur að breytingum á reglum, vinnuferlum  og skipulagi stjórnsýslu sem miða að því að gera stjórnkerfi bæjarins og sérstaklega fjármálakerfið virkara gagnsærra og heiðarlegra.

4.  Að skila bæjarstjórn fyrir áramót skýrslu um rannsóknina ásamt þeim samantektum og úttektum sem nefndin ákveður að láta vinna í þágu rannsóknarinnar.


Vafalaust mætti skoða margt fleira. En markmiðið með rannsókninni væri að gera bæjarfélagið betra og stjórn þess gagnsærri og lýðræðislegri.


Hvað um prófkjör flokkanna í Kópavogi ? Hvernig hafa flokkarnir og einstakir frambjóðendur fjármagnað kosningabaráttur sínar? Eiga bæjarbúar ekki rétt á að vita það ?

Af hverju ekki að byrja í Kópavogi? Margt bendir til þess að Kópavogur þurfi á á sérstöku þrifabaði að halda. Það kom fram í prófkjörsbaráttu Sjálfstæðisflokksins. Verkefnið er því stórt og sérstaklega brýnt í Kópavogi. Af hverju ekki einmitt að byrja hér: Gerum Kópavog að fyrirmyndarbæjarfélagi um gansæja og lýðræðislega stjórnsýslu.

Höfundur skipar 2. sætið á lista VG í Kópavogi

 

Skrifa athugasemd


Öryggiskóði
Endurhlaða

Póstlisti

Hér geturðu skráð þig á póstlista Vinstri grænna í Kópavogi
Nafn
Póstfang