Innskráning
Vinstri græn í Kópavogi
Vinstri græn í Kópavogi
| Ríkisstjórnin stendur ekki og fellur með Icesave |
|
|
|
| Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 23:42 |
|
Aðalfundur svæðisfélags VG í Kópavogi var haldinn 21. janúar síðastliðinn og var svohljóðandi ályktun samþykkt: Meginverkefni núverandi ríkisstjórnar er uppgjör vegna hrunsins og endurmótun íslenska efnahagskerfisins með velferðarsamfélag í anda hinna norrænu velferðarsamfélaga að leiðarljósi. Ríkisstjórnin stendur og fellur með þessu verkefni. Þótt vandamálið vegna Icesave-samninganna sé mikið og alvarlegt, og þótt það verði ekki slitið úr samhengi við hið kapítalíska brask undanfarinna ára, þá er það eigi að síður afmarkaður þáttur þeirra vandamála sem ríkisstjórnin tók við. Brýnt er að leita þverpólitískrar sáttar um að leysa málið sem fyrst. Ríkisstjórnin stendur ekki og fellur með úrslitum þessa máls en það má ekki verða til að hleypa þeim meginverkefnum í uppnám sem ríkisstjórnin var kosin til að leysa. Á undanförnum tveimur áratugum hefur ójöfnuður aukist, álögur hafa verið færðar markvisst yfir á herðar hina efnaminni og grafið undan velferðarkerfinu. Stjórnmálin nú einkennast af stéttabaráttu í þeim skilningi að auðstéttin berst með kjafti og klóm gegn því að missa spón úr aski sínum. Áfram hefur hún nýfrjálshyggjuna að leiðarljósi og jafnvel hófsöm vinstri stefna í anda norræns velferðarsamfélags er eitur í hennar beinum. Aðalfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs Í Kópavogi krefst þess af ríkisstjórninni að hún hviki ekki frá þeim verkefnum sem hún var kosin til að leysa og láti ekki önnur ágreiningsmál standa í vegi fyrir þeim. Fundurinn minnir einnig á nauðsyn þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð beiti sér gegn áhrifum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og annarra fulltrúa fjármagnsafla á efnahagsstjórn landsins og stuðli að því að afskiptum AGS ljúki hið bráðasta með brotthvarfi fulltrúa hans. |